Dagsetning:

6. september 2023

Vinnustofur Portúgal og Spáni í nóvember 2023 

Skráningarfrestur er til 6. september

Ljósmynd

Íslandsstofa stendur fyrir vinnustofum í Portúgal og á Spáni dagana 21. - 23. nóvember 2023. Á vinnustofunum gefst fyrirtækjum tækifæri til að kynna sig og koma á viðskiptasamböndum við ferðaþjónustuaðila á staðnum.

Fyrirkomulag: 
21. nóvember - Lissabon
22. nóvember - Madríd
23. nóvember - Barcelona

Verð:
Verð fyrir þátttöku pr. vinnustofu er að hámarki 165.000 kr. á fyrirtæki og getur hvert fyrirtæki sent tvo starfsmenn. 

Innifalið í þátttökugjaldi er:

  • Fundarborð

  • Upplýsingar um portúgalska og spænska ferðaþjónustuaðila sem skrá sig til þátttöku í vinnustofunum

  • Veitingar á meðan vinnustofum stendur

Athugið að þátttakendur sjá sjálfir um að bóka flug og gistingu, sá kostnaður er ekki innifalinn í verði vinnustofanna. 

Skráning:
Áhugasamir um þátttöku eru beðnir um að fylla út skráningarformið hér að neðan fyrir 6. september nk. Athugið að skráning er bindandi.  

Nánari upplýsingar veitir Oddný Arnarsdóttir, oddny@islandsstofa.is

SKRÁNING

Vinnustofur Portúgal og Spáni í nóvember 2023 

Sjá allar fréttir