Dagsetning:
4. ágúst 2022
Viðtal við sendiherra Íslands í Kína
Tækifæri í Kína?

Þórir Ibsen, sendiherra Íslands í Peking, býður upp á viðtalstíma fimmtudaginn 4. ágúst um viðskiptamál og menningartengd verkefni í Kína, og önnur hagsmunamál þar sem sendiherrann getur orðið að liði. Auk Kína eru Mongólía, Tæland og Víetnam í umdæmi sendiráðsins.
Fundirnir fara fram á skrifstofu Íslandsstofu í Grósku, Bjargargötu 1, 102 Reykjavik. Einnig stendur til boða að hafa viðtalið í gegnum Teams.
Nánari upplýsingar veitir Una Hildardóttir (una@islandsstofa.is).
Hægt er að bóka viðtal hér að neðan.