Dagsetning:

24. september 2024

Vestnorden 2024 í Færeyjum

Ísland - Færeyjar - Grænland

Ljósmynd

Vestnorden er mikilvægur vettvangur fyrir íslenska ferðaþjónustu.

Vestnorden ferðakaupstefnan verður haldin í Færeyjum dagana 24. og 25. september 2024. Skráning er hafin!

Vestnorden er að stærsti viðburður sem haldinn er í ferðaþjónustu á Íslandi og búast má við um 500 gestum til landsins til að taka þátt í kaupstefnunni sem fer nú fram í 40. skipti. Á Vestnorden er lögð áhersla á ábyrga ferðahegðun og sjálfbærni og fellur því vel að áhersluatriðum íslenskrar ferðaþjónustu.

Ferðamálasamtök Norður-Atlantshafsins (NATA), sem er samstarfsvettvangur Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála, standa að Vestnorden. Löndin þrjú skipta með sér umsjón með ferðakaupstefnunni en hún er haldin annað hvert ár á Íslandi.

Vestnorden verður með svipuðu sniði og síðasta ár. Á Vestnorden 2024 verða sett upp þrjú landasvæði þar sem fundir fara fram og munu söluaðilar fá til yfirráða borð og stóla inni á sínu svæði, merkt viðkomandi fyrirtæki. Með þessari breytingu er verið að hverfa frá básauppstillingu sem áður hefur einkennt kaupstefnuna og færa okkur í átt að umhverfisvænni kaupstefnu og draga þannig úr kolefnisspori. Löndin munu birtast þátttakendum með stafrænum lausnum og myndefni. 
Sjá upplýsingar um "early bird" verð ef fyrirtæki skrá sig fyrir 21. júní nk.

Allar nánari upplýsingar er að finna á vef Vestnorden.

Skráning er hafin á Vestnorden 2024 í Færeyjum

Sjá allar fréttir