Dagsetning:
7. október 2022
Sendiherra Íslands í Kanada til viðtals
Tækifæri í Kanada?

Hlynur Guðjónsson, sendiherra Íslands í Ottawa, býður upp á viðtalstíma föstudaginn 7. október um viðskiptamál og menningartengd verkefni í Kanada, og önnur hagsmunamál þar sem sendiherrann getur orðið að liði. Auk Kanada er Kosta Ríka í umdæmi sendiráðsins.
Fundirnir fara fram á skrifstofu Íslandsstofu í Grósku, Bjargargötu 1,102 Reykjavik. Einnig stendur til boða að hafa viðtalið í gegnum Teams.
Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður Davíðsdóttir (adalheidur@islandsstofa.is).
Hægt er að bóka viðtal hér að neðan.