22. janúar 2021

Sendiherra Íslands í Danmörku til viðtals

Helga Hauksdóttir, sendirherra Íslands í Kaupmannahöfn verður til viðtals fimmtudaginn 28. janúar.

Helga Hauksdóttir, sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn, verður til viðtals fimmtudaginn 28. janúar um viðskiptamál og menningartengd verkefni í Danmörku, og önnur hagsmunamál þar sem sendiráðið getur orðið að liði. Auk Danmerkur eru Búlgaría, Rúmenía og Tyrkland í umdæmi sendiráðsins.

Fundirnir fara fram í gegnum fjarfundaforritið Teams, en einnig er hægt að hafa viðtalið í gegnum síma.

Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður Davíðsdóttir (adalheidur@islandsstofa.is).

BÓKA VIÐTAL


Sjá allar fréttir