Dagsetning:

8. maí 2023

Rafræn viðskipti og streymiskynningar í Kína

Hilton Reykjavík Nordica kl. 9.30-11.30

Ljósmynd

Mánudaginn 8. maí standa sendiráð Kína á Íslandi og menningar- og viðskiptaráðuneytið fyrir kynningarfundi undir yfirskriftinni Rafræn viðskipti og streymiskynningar í Kína í samstarfi við Íslandsstofu og Ísmoli Marketing Group. Á fundinum verður sjónum beint að rafrænum viðskiptum með áherslu á s.k. cross-border e-commerce, sem einfaldar erlendum fyrirtækjum leið inn á markað í Kína, og lifandi streymiskynningar þar sem áhrifavaldar kynna og selja vörur á samfélagsmiðlum. Við ætlum m.a. að heyra hvernig samstarfi fyrirtækja og áhrifavalda er háttað og hvaða tækifæri felast í þessari kynningar- og söluleið fyrir íslensk fyrirtæki. Sex kínverskir áhrifavaldar eru væntanlegir til landsins og taka þátt í viðburðinum.

Fundurinn er haldinn á Hilton Reykjavík Nordica mánudaginn 8. maí kl. 9:30-11:30. Hann fer fram á ensku og er öllum opinn er nauðsynlegt er að skrá þátttöku með því að smella á hnappinn hér að neðan.
Dagskrá

Fundurinn markar upphaf íslensk-kínverskrar streymisviku en dagana eftir fundinn munu kínversku áhrifavaldarnir vinna með íslenskum fyrirtækjum að lifandi streymiskynningum á vörumerkjum þeirra á kínverskum samfélagsmiðlum

Nánari upplýsingar veitir Erna Björnsdóttir, erna@islandsstofa.is

SKRÁ ÞÁTTTÖKU

Íslandsstofa - Útflutningsaðstoð, landkynning, fjárfestingar

Sjá allar fréttir