Dagsetning:
8. september 2022
Nýsköpun og tækifæri í íslenskri matvælaframleiðslu

Takið daginn frá til að ræða nýsköpun og tækifæri í íslenskri matvælaframleiðslu á ráðstefnu sem haldin verður á Hótel Selfossi þann 8. september kl. 9.00-12.15.
Brýnt er að auka matvælaframleiðslu í heiminum verulega á næstu áratugum vegna sífellt vaxandi íbúafjölda heimsins. Í þessu felast miklar áskoranir þar sem stór hluti af nýtanlegu gróðurlendi heimsins er þegar notað í landbúnaðarframleiðslu. Nýtanlegir fiskistofnar eru margir komnir að þolmörkum og vaxandi skortur er á orku og vatni til fæðuframleiðslu.
Í þessum áskorunum felast jafnframt mikil tækifæri fyrir Ísland sem ætlunin er að varpa ljósi á í þessum viðburði sem er samstarfsverkefni Orkídeu, Landbúnaðarháskóla Íslands, Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins, Háskólans á Bifröst, Íslandsstofu, Lax-inn fræðslumiðstöðvar, Matís, Ráðgjafamiðstöðvar landbúnaðarins, Samtökum smáframleiðenda matvæla og Ölfus Cluster. Sjá dagskrá og nánari upplýsingar
Aðgangur er ókeypis en skráning er nauðsynleg, sjá hér að neðan.