Dagsetning:

10. janúar 2024

Norrænar vinnustofur í París og Mílanó

Skráningarfrestur er til 10. janúar

Ljósmynd

Íslandsstofa skipuleggur norrænar vinnustofur í París og Mílanó dagana 19. og 21. mars. Á vinnustofunum gefst fyrirtækjum tækifæri til að kynna sig og koma á viðskiptasamböndum við ferðaþjónustuaðila á staðnum.

Vinnustofan í París er skipulögð í samstarfi við Visit Denmark, Visit Finland og Visit Norway.

Vinnustofan í Mílanó skipulögð í samstarfi við Visit Denmark, Visit Finland, Visit Norway og Visit Sweden.

Ákall hefur verið innan ferðaþjónustunnar um að bjóða vinnustofur í tveim löndum samtímis og nýta ferðalög betur. Þau fyrrtæki sem sækja báðar vinnustofurnar ganga því fyrir, en við skoðum einnig samhliða þá sem kjósa aðra vinnustofuna sökum hagsmuna.

Fyrirkomulag: 
19. mars – París 
20. mars – ferðadagur 
21. mars – Mílanó  

Verð:
Verð fyrir þátttöku í vinnustofunni í París er að hámarki EUR 1.500 og verð fyrir þátttöku í vinnustofunni í Mílanó er að hámarki EUR 1.920.  

Innifalið í þátttökugjaldi er:

  • Fundarborð

  • Upplýsingar um franska og ítalska ferðaþjónustuaðila sem skrá sig til þátttöku í vinnustofunum.

  • Veitingar á meðan vinnustofum stendur.

Athugið að þátttakendur sjá sjálfir um að bóka flug og gistingu og að sá kostnaður er ekki innifalinn í verði vinnustofanna. Gert er ráð fyrir að hópurinn ferðist saman á milli borganna.

Skráning:
Áhugasamir um þátttöku eru beðnir um að fylla út skráningarformið hér að neðan fyrir 10. janúar nk. Athugið að skráning er bindandi.

Nánari upplýsingar veitir Hrafnhildur Þórisdóttir, hrafnhildur@islandsstofa.is

SKRÁNING

Norrænar vinnustofur í París og Mílanó

Sjá allar fréttir