Dagsetning:

21. febrúar 2023

Meðhöndlun á virðisaukaskatti til ESB og Bretlands

Hádegisfundur í Grósku kl. 12-13

Ljósmynd

Mikilvægt er að íslensk fyrirtæki átti sig á hvaða reglur gilda um meðhöndlun á virðisaukaskatti áður en viðskipti á milli landa eiga sér stað.

Kynningarfundur Deloitte Legal og Íslandsstofu 

 
Við bjóðum þér á kynningarfund um mikilvæg atriði sem snúa að meðhöndlun á virðisaukaskatti við sölu á vörum eða þjónustu til ESB landa og Bretlands.

Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 21. febrúar kl. 12-13 í húsi Grósku, Bjargargötu 1, í Sykursalnum á 1. hæð. Léttur hádegisverður í boði. Enginn aðgangseyrir, en áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig hér að neðan. 

Mikilvægt er að íslensk fyrirtæki átti sig á hvaða reglur gilda um meðhöndlun á virðisaukaskatti áður en viðskipti á milli landa eiga sér stað. Mismundi reglur gilda eftir því hvort selt er til fyrirtækis eða einstaklings, hvar varan er framleidd og afhent, hvort varan eða þjónustan er seld í vefsölu eða jafnvel afhent á rafrænu formi. Söluupphæð getur jafnframt skipt máli varðandi hvaða reglur um gilda og í sumum tilvikum myndast endurgreiðsluréttur. Þá voru nýjar reglur ESB um vefsölu kynntar árið 2021.

Deloitte Legal hefur í samstarfi við Íslandsstofu tekið saman ýmis tilvik sem íslensk fyrirtæki standa frammi fyrir við sölu vara og þjónustu til Evrópusambandslanda og Bretlands. Á kynningarfundinum munu sérfræðingar Deloitte fara yfir helstu dæmi og svara spurningum fyrirtækja um einstök tilvik. Fulltrúar Íslandsstofu munu jafnframt kynna starfsemi útflutningsþjónustu og mögulega aðstoð til fyrirtækja.

Nánari upplýsingar veitir Ágúst Sigurðsson (agust@islandsstofa.is)

Kynning Íslandsstofu og Deloitte Legal

Sjá allar fréttir