Dagsetning:

25. október 2023

Ferðakakaupstefnan ITB Asia

Ferðasýning í Singapore

Ljósmynd

Íslandsstofa skipuleggur þátttöku íslenskra fyrirtækja á ferðasýningunni ITB Asia sem haldin verður í Singapore dagana 25.-27. október. Sýningin er eingöngu ætluð aðilum í ferðaþjónustu og því ekki opin almenningi (B2B). 

Markaðir á SA-Asíu eru óðum að opnast eftir faraldurinn og hér er því gott tækifæri til að vera framarlega í að afla viðskipta. Á sýningunni er öflugt fundabókanakerfi. Til að tryggja sem bestan árangur á sýningunni, er mælt með því að þátttakendur nýti sér kerfið og bóki fundi fyrirfram með vænlegum viðskiptavinum.
Verð:
Kostnaður verður að hámarki kr. 700.000 á fyrirtæki. Athugið að ferðakostnaður er ekki innifalinn í þátttökugjaldi. Þátttakendum býðst þó að bóka herbergi á hagstæðu verði á Swissôtel Hotel & Resorts í gegnum Íslandsstofu.

Nánari upplýsingar veitir Þorleifur Þór Jónsson, thorleifur@islandsstofa.is

Íslandsstofa - Útflutningsaðstoð, landkynning, fjárfestingar

Sjá allar fréttir