Dagsetning:
16. júní 2022
Staður:
Singapore
Ferðakaupstefnan ITB Asia í október
Tækifæri fyrir aðila í ferðaþjónustu
.jpg?ixlib=gatsbyFP&auto=compress%2Cformat&fit=max&w=1300&h=797)
Íslandsstofa skipuleggur þátttöku íslenskra fyrirtækja á ferðasýningunni ITB Asia sem haldin verður í Singapore dagana 19.-21. október. Sýningin er eingöngu ætluð aðilum í ferðaþjónustu og því ekki opin almenningi (B2B).
Á sýningunni er öflugt fundabókanakerfi. Til að tryggja sem bestan árangur á sýningunni, er mælt með því að þátttakendur nýti sér kerfið og bóki fundi fyrirfram með vænlegum viðskiptavinum.
Verð og skráning
Kostnaður verður að hámarki kr. 550.000 á fyrirtæki. Athugið að ferðakostnaður er ekki innifalinn í þátttökugjaldi. Þátttakendum býðst þó að bóka herbergi á hagstæðu verði á Swissôtel Hotels & Resorts í gegnum Íslandsstofu.
Áhugasamir um þátttöku eru beðnir um að fylla út skráningareyðublaðið hér að neðan fyrir 16. júní.
Nánari upplýsingar veitir Þorleifur Þór Jónsson, thorleifur@islandsstofa.is