23. nóvember 2023

Tekjur af MICE ferðaþjónustu 30 milljarðar árið 2022

Ljósmynd
Ný greining frá KPMG sýnir að tekjur vegna ráðstefnu- og hvataferða námu 30 milljörðum á seinasta ári. 

Samkvæmt greiningu sem KPMG hefur framkvæmt fyrir Íslandsstofu skilaði ferðaþjónusta tengd ráðstefnu- og hvataferðum, svokölluð MICE ferðaþjónusta, (e. meetings, incentives, conferences, events) tekjum uppá 30 milljarða hér á landi árið 2022.  

Fjöldi ferðamanna sem kom til landsins gagngert til þess að sækja viðburði eða fara í hvataferðir var um 78.000 eða 4,6% af heildar fjölda erlendra ferðamanna 2022. Tekjuhlutfall MICE ferðamanna var hins vegar um 9,3%. Samkvæmt útreikningum KPMG eru tekjur af hverjum ráðstefnugesti hér á landi að meðaltali 2,1 sinni hærri en af meðal ferðamanni og tekjur af hverjum hvataferðagesti er 2,7 sinnum hærri. 

Þá kemur einnig fram í greiningu KPMG að aukin MICE ferðalög geti átt þátt í að draga úr áhrifum árstíðarsveiflu í ferðaþjónustu, en álagspunktar MICE ferðaþjónustu eru utan hefðbundinnar háannar íslenskrar ferðaþjónustu.  

Lína Petra Þórarinsdóttir, fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu:  

„Þessi greining staðfestir verðmæti þessa hóps fyrir íslenska ferðaþjónustu. Ísland er í mjög góðri stöðu til þess að sækja í auknu mæli á þennan markhóp. Aðstæður til ráðstefnuhalds hér á Íslandi hafa batnað mikið á undanförnum árum þó þar megi ennþá gera getur. Þetta er hópur sem gerir miklar kröfur um umhverfislega og félagslega sjálfbærni, og spurn eftir öruggum áfangastöðum og jaðarsvæðum hefur verið að aukast. Okkar styrkur sést meðal annars á því að fjöldi MICE verkefna hér á landi var strax árið 2022 orðin meiri en fyrir heimsfaraldur en flest okkar nágrannalönd okkar gera sér von um að ná þeim árangri 2025 eða 2026.“  

Það sem helst kemur í veg fyrir aukin umsvif MICE ferðaþjónustu samkvæmt greiningu KPMG eru takmarkanir í innviðum. Þörf sé á auknu framboði 4-5 stjörnu gistirýma. Þá vanti veitingarými fyrir stærri hópa, og þörf sé fyrir breytileg sýningasvæði og viðburðarými svo eitthvað sé nefnt.   

Hægt er að kynna sér niðurstöður KPMG nánar hér 

Tekjur af MICE ferðaþjónustu 30 milljarðar árið 2022

Sjá allar fréttir