23. ágúst 2023

Aukin þjónusta við íslensk fyrirtæki á erlendum mörkuðum

Frá undirritun samningsins á Ísafirði. Pétur Þ. Óskarsson, Þórdís Kolbrún Gylfadóttir Reykfjörð og Hildur Árnadóttir

Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og Hildur Árnadóttir, formaður stjórnar Íslandsstofu við undirritun samkomulags.  

Utanríkisráðuneytið og Íslandsstofa hafa gert með sér samkomulag þess efnis að Íslandsstofa taki í auknum mæli að sér þjónustu við íslensk fyrirtæki á erlendum mörkuðum með ráðningu viðskiptafulltrúa í völdum borgum. Samningurinn felur í sér að að fagleg samræming og verkstjórn þeirra viðskiptafulltrúa verði á ábyrgð Íslandsstofu. Tilgangur samstarfsins er að efla stuðning við íslenskar útflutningsgreinar með ráðningu sérhæfðra viðskiptafulltrúa sem veitt geti íslenskum útflutningsfyrirtækjum og útflutningsgreinum sértæka aðstoð og þjónustu í samræmi við útflutningsstefnu Íslands. 

Þessi þjónusta viðskiptafulltrúa á áherslumörkuðunum kemur til viðbótar við almenna hagsmunagæslu utanríkisþjónustunnar og þann stuðning sem hún veitir á öllum mörkuðum sem felur meðal annars í sér aðstoð við að liðka fyrir viðskiptum á nýjum mörkuðum, stuðning við viðskiptasendinefndir og milliríkjasamskipti, ásamt öflun og miðlun upplýsinga.

Ákvörðun um staðsetningu viðskiptafulltrúa samkvæmt þessu fyrirkomulagi verður tekin sameiginlega af ráðuneytinu og Íslandsstofu í samræmi við mat á tækifærum á erlendum mörkuðum. Fyrstu viðskiptafulltrúarnir sem ráðnir verða með þessum hætti verða annars vegar við sendiráð Íslands í Varsjá og hins vegar viðskiptafulltrúi Íslands í Bandaríkjunum, sem staðsettur er í New York. Gert er ráð fyrir að þeir taki til starfa 1. janúar 2024.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra: „Þjónusta við íslensk fyrirtæki á erlendum mörkuðum hefur um árabil verið mikilvægur þáttur í starfsemi utanríkisþjónustunnar. Þessar skipulagsbreytingar sem við ráðumst nú í ásamt Íslandsstofu fela í sér tækifæri til að auka sérhæfingu í samræmi við þarfir atvinnulífsins á hverjum tíma. Markmiðið er að þróa þetta samstarf áfram þannig að íslensk fyrirtæki hafi enn betri aðgang að þjónustu á fleiri mörkuðum.“

Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu: „Við höfum á undanförnum árum markvisst aukið samstarfið við sendiskrifstofur Íslands erlendis. Þetta samkomulag er einn liður í því að þróa það samstarf enn frekar. Við ákvörðun á mörkuðum horfum við meðal annars til þeirra tækifæra sem til staðar eru á viðkomandi svæðum en einnig til þess hvar viðskiptafulltrúar á okkar vegum geta komið með sérhæfða þekkingu að borðinu. Það getur til dæmis verið á tilteknu sviði atvinnulífsins í viðkomandi landi eða staðbundna þekkingu á því að stunda viðskipti á nýjum mörkuðum.“

Aukin þjónusta við íslensk fyrirtæki á erlendum mörkuðum

Sjá allar fréttir