Dagsetning:
5. september 2022
Staður:
Denver, Minneapolis, Raleigh-Durham
Vinnustofur í Bandaríkjunum
Tækifæri í ferðaþjónustu

Íslandsstofa stendur fyrir vinnustofum í Bandaríkjunum fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu dagana 5.- 9. september 2022. Á vinnustofunum gefst fyrirtækjum tækifæri til að kynna sig og koma á viðskiptasamböndum við ferðaþjónustuaðila á staðnum.
Skipulag er eftirfarandi:
6. september - Raleigh-Durham
7. september - Denver
8. október - Minneapolis
Verð og skráning:
Verð fyrir þátttöku í vinnustofunum er að hámarki kr. 450.000 á fyrirtæki. Athugið að ferðakostnaður er ekki innifalinn í verði.
Skráningarfrestur er til og með 31. maí. Þar sem heildarfjöldi þátttakenda er takmarkaður er unnið út frá reglunni um að þeir sem skrá sig fyrst ganga fyrir.
Nánari upplýsingar veitir Oddný Arnarsdóttir, oddny@islandsstofa.is