Dagsetning:
31. júlí 2023
Vinnustofur í Austur Evrópu
Áhugakönnun
Íslandsstofa kallar eftir skráningum í vinnustofur í Austur Evrópu í desember nk.
Borgirnar Prag, Varsjá og Riga verði heimsóttar vikuna 4.- 8. desember. Sambærileg ferð var farin í nóvember 2021. Að þessu sinni varð borgin Riga fyrir valinu í stað Budapest, að ósk þátttakenda. Þá þótti desember heppilegri mánuður í ár þar sem margir viðburðir eru í Varsjá síðari hluta nóvember.
Reiknað er með að þátttökugjald verði um 450.000 kr. fyrir alla þrjá staðina. Athugið að ferðakostnaður er ekki innifalinn í verðinu.
Áhugasöm eru beðin um að skrá sig hér að neðan fyrir 31. júlí nk.
Nánai upplýsingar veitir Þorleifur Þór Jónsson, thorleifur@islandsstofa.is