8. nóvember 2021
Viðskiptatækifæri í Kanada - kynningarfundur á vefnum
Sendiráð Íslands í Ottawa boðar til fjarfundar fyrir íslensk fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynnast kanadíska markaðnum og fá innsýn inn í viðskiptatækifæri í Kanada.

Sendiráð Íslands í Ottawa boðar til fjarfundar fyrir íslensk fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynnast kanadíska markaðinum og fá innsýn inn í viðskiptatækifæri í Kanada. Viðburðurinn er skipulagður í samstarfi við Íslandsstofu, Kisserup International Trade Roots og aðalræðisskrifstofu Íslands í New York og fer fram fimmtudaginn 25. nóvember kl. 14-16.
Á fundinum verður m.a. fjallað um viðskiptaumhverfið í Kanada, einkenni markaðarins, og hvað fríverslunarsamningurinn milli Kanada og EFTA (European Free Trade Association) sem Ísland er aðili að, hefur upp á að bjóða. Þá verður rætt um klasasamstarf og möguleg samlegðaráhrif milli klasa á Íslandi og í Kanada.
Áhersla verður lögð á orku og grænar lausnir, hugvit, nýsköpun og tækni, listir og skapandi greinar, ferðaþjónustu, sjávarútveg, matvæli og náttúruafurðir. Nánari upplýsingar og dagskrá
Í kjölfar kynningarinnar verður fyrirtækjum sem hyggja á viðskipti á kanadíska markaðinum boðið upp á eftirfylgnifund þann 1. desember nk. í Grósku í Reykjavík, þar sem viðskiptafulltrúi Íslands í Kanada verður til viðtals.
Nánari upplýsingar veitir Per Unheim, viðskiptafulltrúi Íslands í Kanada, per.unheim@utn.is

2. október 2026
Tækifæri á Bandaríkjamarkaði fyrir fyrirtæki í heilbrigðistækni

1. október 2026
Íslensk tónlist, matur og menning í sviðsljósinu í New York

24. september 2026
Íslensk fjártækni í forgrunni á Nordic Fintech Week í Kaupmannahöfn

22. september 2026
Elín Sigurveig Sigurðardóttir nýr fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu
![Frétta mynd]()
2. október 2026
Tækifæri á Bandaríkjamarkaði fyrir fyrirtæki í heilbrigðistækni
![Fólk á viðburði Taste of Iceland]()
1. október 2026
Íslensk tónlist, matur og menning í sviðsljósinu í New York
![Íslenski básinn á Nordic Fintech Week í Kaupmannahöfn]()
24. september 2026
Íslensk fjártækni í forgrunni á Nordic Fintech Week í Kaupmannahöfn
![Frétta mynd]()
22. september 2026
Elín Sigurveig Sigurðardóttir nýr fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu