31. maí 2021
Vestnorden 2021 haldin á Reykjanesi
Vestnorden ferðakaupstefnan verður haldin á Reykjanesi dagana 5.-7. október.

Vestnorden ferðakaupstefnan verður haldin á Reykjanesi dagana 5.-7. október 2021.
Á Vestnorden koma saman ferðaþjónustuaðilar frá Íslandi, Grænlandi og Færeyjum og ferðaheildsalar víðs vegar að úr heiminum. Þá koma einnig til kaupstefnunnar blaðamenn og aðrir boðsgestir. Í tengslum við Vestnorden gefst ferðaheildsölunum auk þess kostur á að fara í kynnisferðir til landanna þriggja.
Í ljósi aðstæðna hefur verið ákveðið að skráningargjald á Vestnorden muni haldast óbreytt út skráningartímann eða til og með 5. september nk. Á þetta bæði við um skráningargjald fyrir sýnendur og kaupendur. Einnig verður hægt að afbóka án kostnaðar til 25. ágúst nk. Við hvetjum alla áhugasama til að skrá sig sem fyrst.
Vestnorden er haldin af Ferðamálasamtökum Norður-Atlantshafsins (NATA), sem er samstarfsvettvangur Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála. Vestnorden er haldin til skiptis af löndunum þremur, þar af annað hvert ár á Íslandi.
Íslandsstofa er framkæmdaaðili Vestnorden í ár en Sena sér um skipulagningu.
Nánari upplýsingar um kaupstefnuna er að finna á vefsíðunn www.vestnorden.com.

11. mars 2026
Laufey og uppbygging alþjóðlegs vörumerkis á Bandaríkjamarkaði

10. mars 2026
Ársfundur Íslandsstofu 18. mars - Alþjóðaviðskipti á óvissutímum 2.0

9. mars 2026
Viðskiptastjóri óskast á sviði orku og grænna lausna

4. mars 2026
Íslenskur fiskur í aðalhlutverkinu á virtri verðlaunahátíð í London
![Frétta mynd]()
11. mars 2026
Laufey og uppbygging alþjóðlegs vörumerkis á Bandaríkjamarkaði
![Frétta mynd]()
10. mars 2026
Ársfundur Íslandsstofu 18. mars - Alþjóðaviðskipti á óvissutímum 2.0
![Frétta mynd]()
9. mars 2026
Viðskiptastjóri óskast á sviði orku og grænna lausna
![Sigurvegarar í flokknum Takeaway of the year taka á móti verðlaunum á Fish and Chip Awards 2025]()
4. mars 2026
Íslenskur fiskur í aðalhlutverkinu á virtri verðlaunahátíð í London