1. september 2021

TechBBQ ráðstefnan í Kaupmannahöfn

Íslandsstofa skipuleggur í samstarfi við íslenska sendiráðið í Danmörku sendinefnd á ráðstefnuna TechBBQ sem fer fram 16. - 17. september 2021 í Kaupmannahöfn.

Íslandsstofa skipuleggur í samstarfi við íslenska sendiráðið í Danmörku sendinefnd á ráðstefnuna TechBBQ sem fer fram dagana 16. og 17. september í Kaupmannahöfn.

Ráðstefnan hefur undanfarin ár verið góður vettvangur til þess að komast í samband við fjárfesta, aðra frumkvöðla, fjölmiðla og áhugaverða samstarfsaðila.

Íslandsstofa hvetur áhugasöm fyrirtæki, fjárfesta og fólk úr stuðningsumhverfi nýsköpunar á Íslandi til að slást með í för á einn mest spennandi tengslaviðburð nýsköpunar í Evrópu.

Þátttakendur fá miða á TECHBBQ viðburðinn á afar sprotavænum kjörum, boð í fjárfestamóttöku á vegum íslenska sendiráðsins og pop-up viðburð sem haldinn verður á svæðinu.

Lesa má allt um dagskrá og áherslur TECHBBQ hér: The Startup Event of The Nordics - TechBBQ

Nánari upplýsingar veitir Jarþrúður Ásmundsdóttir, fagstjóri hugvits, nýsköpunar og tækni, jarthrudur@islandsstofa.is 


Sjá allar fréttir