Dagsetning:

18. desember 2023

Sendiherra Íslands í Finnlandi til viðtals

Tækifæri í Finnlandi?

Ljósmynd

Harald Aspelund, sendiherra Íslands í Helsinki, verður til viðtals hjá Íslandsstofu mánudaginn 18. desember, eftir hádegi. Fundirnir eru ætlaðir þeim sem vilja ræða viðskiptamöguleika, menningartengd verkefni og önnur hagsmunamál þar sem sendiherrann getur orðið að liði. Auk Finnlands eru Eistland, Lettland og Litháen í umdæmi sendiráðsins.

Viðtölin fara fram í húsakynnum Íslandsstofu í Grósku, Bjargargötu 1, 102 Reykjavík. 

Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður Davíðsdóttir, adalheidur@islandsstofa.is eða í síma 511 4000.

BÓKA VIÐTAL

Sjá allar fréttir