12. janúar 2021
Styrkir fyrir nýsköpunarverkefni í ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu
Íslandsstofa bendir ferðaþjónustuaðilum á að umsóknarfrestur í Sóley nýsköpunarsjóði SSH fyrir ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu hefur verið framlengdur.
Íslandsstofa bendir ferðaþjónustuaðilum á að umsóknarfrestur í Sóley nýsköpunarsjóði SSH fyrir ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu hefur verið framlengdur.
Sjóðurinn leggur áherslu á nýsköpunarverkefni í ferðaþjónustu sem eru til þess fallin að auka samkeppnishæfni og stuðla að sjálfbærni og jákvæðum umhverfisáhrifum á svæðinu. Sjóðurinn hefur til umráða 7 milljónir kr. og getur hver styrkur verið allt að 1,5 milljón.
Aðilar í ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu eru hvattir til að sækja um í sjóðinn.
Nánari upplýsingar má finna hér: www.ssh.is/soley