Dagsetning:

10. ágúst 2023

Sendiherra Íslands í Kína til viðtals

Tækifæri í Kína?

Ljósmynd

Þórir Ibsen, sendiherra Íslands í Peking, býður upp á viðtalstíma fimmtudaginn 10. ágúst um viðskiptamál og menningartengd verkefni í Kína, og önnur hagsmunamál þar sem sendiherrann getur orðið að liði. Auk Kína eru Mongólía, Taíland og Víetnam í umdæmi sendiráðsins.

Fundirnir fara fram á skrifstofu Íslandsstofu í Grósku, Bjargargötu 1,102 Reykjavik. Einnig stendur til boða að hafa viðtalið í gegnum Teams.

Nánari upplýsingar veitir Tjörvi Þórhallsson (tjorvi@islandsstofa.is).

Bóka viðtal
Sendiherra Íslands í Kína til viðtals

Sjá allar fréttir