Dagsetning:

30. nóvember 2023

Seafood Expo North America í Boston 2024

Skráningarfrestur er til 30. nóvember

Ljósmynd

Sjávarútvegssýningin Seafood Expo North America fer fram í Boston dagana 10. – 12. mars 2024. Íslandsstofa hefur umsjón með þjóðarbás Íslands og er að skipuleggja sameiginlegt sýningarsvæði íslenskra fyrirtækja á sýningunni. Þar býðst framleiðendum sjávarafurða og útflytjendum á Íslandi þjónusta og aðstoð við kynningarstarf. Sýningin er sú stærsta í Norður Ameríku og koma 77% gesta þaðan, 8% koma frá Evrópu og Asíu og 5% frá Suður Ameríku. Hér má nálgast pdf skjal yfir lykil kaupendur sem mættu á sýninguna í ár. 

Kostnaður við þátttöku á sameiginlegu sýningarsvæði er 450.000 kr.

Mikil aukning hefur verið í útflutningi sjávar- og eldisafurða frá Íslandi til Bandaríkjanna á síðustu árum. 

  • Á milli áranna 2021 og 2022 jókst útflutningsverðmæti sjávar- og eldisafurða til Bandaríkjanna og Kanada úr 45 ma. ISK í 58,5 ma. eða um 30%.

  • Bandaríkin eru stærsti markaðurinn fyrir íslenskan lax með um 22% markaðshlutdeild.

  • Bandaríkin eru næststærsti markaður Íslendinga fyrir fersk þorskflök og bita á eftir Frakklandi.

Áhugasamir geta skráð sig hér að neðan. Frekari upplýsingar veita Björgvin Þór Björgvinsson bjorgvin@islandsstofa.is og María Björk Gunnarsdóttir, maria@islandsstofa.is

SKRÁNING

Seafood Expo North America í Boston 2024

Sjá allar fréttir