17. maí 2021

Norræn vinnustofa í Frankfurt

Íslandsstofa stendur fyrir norrænni vinnustofu í Frankfurt í Þýskalandi þann 7. september 2021, í samstarfi við Visit Norway, Visit Denmark og Visit Finland.

Íslandsstofa stendur fyrir norrænni vinnustofu í Frankfurt í Þýskalandi þann 7. september 2021, í samstarfi við Visit Norway, Visit Denmark og Visit Finland. Vonir standa til að bólusetningarmarkmiðunum verði náð á þessum tíma og við getum loksins hitt kaupendur okkar augliti til auglitis. 

Fyrirkomulag:

Vegna gildandi sóttvarnarreglna í Þýskalandi verður hægt að bjóða 10 samstarfsfyrirtækjum þátttöku og getur hvert fyrirtæki sent einn starfsmann. Við vonumst til að geta aukið þennan fjölda þegar fram líða stundir og munum þá láta þá sem eru á biðlista vita. Engum utanaðkomandi gestum verður boðið á viðburðinn að þessu sinni og verður mjög vel gætt að sóttvörnum. Ef ekki verður hægt að halda vinnustofuna á staðnum verður hún færð yfir á vefinn og þátttökugjald lækkað umtalsvert. Tilkynnt verður um endanlegt fyrirkomulag fyrir lok júní.

Verð og skráning:

Kostnaður við þátttöku í vinnustofunni er kr. 150.000 á fyrirtæki, að hámarki. Hægt verður að afskrá sig til 12. júní án endurgjalds. 

Innifalið í þátttökugjaldi er:

- Móttökuborð
- Rafræn skráning
- Kynning fyrirtækis á vefsíðu vinnustofunnar 
- Upplýsingar um þýska ferðaheildsala sem skrá sig til þátttöku 
- Hádegisverður meðan á vinnustofu stendur.

Athugið að ferðakostnaður er ekki innifalinn í verði. Verð pr. nótt er 100 evrur með morgunverði.

Nánari upplýsingar veitir Jelena Ohm, jelena@islandsstofa.is


Sjá allar fréttir