Dagsetning:

24. maí 2022

Staður:

Félag atvinnurekenda, Húsi verslunarinnar

Tegund:

Morgunverðarfundur

Netverslun í Kína

Hvernig kem ég vörunni minni á framfæri?

Hvað þarf að gera til að koma vörunni sinni á framfæri við kínverska neytendur?

Kínverjar eru duglegir að selja Íslendingum vörur á netinu en viðskiptin í hina áttina eru ekki eins mikil. Mörg íslensk fyrirtæki telja vörurnar sínar eiga erindi við kínverska markaðinn en flestir reka sig á að málið er mun flóknara en að opna bara sölusíðu á netinu. Hvað þarf að gera til að koma vörunni sinni á framfæri við kínverska neytendur? Um það fjöllum við á morgunverðarfundi Íslandsstofu og Íslensk-kínverska viðskiptaráðsins (ÍKV) sem haldinn verður í tengslum við aðalfund ÍKV þriðjudaginn 24. maí kl. 8.30.

DAGSKRÁ

  • 8.30 Cracking the complex code – how to succeed with e-commerce in China
    Joakim Abeleen, viðskiptafulltrúi og markaðsstjóri Business Sweden í Kína

  • 9.00 Víðtæk aðstoð við vöxt erlendis – Samstarf Íslandsstofu og Business Sweden
    Ágúst Sigurðarson, fagstjóri útflutningsþjónustu hjá Íslandsstofu

  • 9.20 Er hægt að selja Kínverjum fisk á netinu?
    Valdís Fjölnisdóttir, framkvæmdastjóri Breiðar þróunarfélags og áður framkvæmdastjóri Blámars

  • 9.40 Frá hugmynd til netverslunar í Kína
    Óskar Þórðarson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Omnom Chocolate

  • 10.00 How to make an Icelandic brand work in the China market
    David Tong Li, stjórnarformaður Ísmoli Marketing Group

Fundurinn verður haldinn í fundarsal Félags atvinnurekenda á 9. hæð í Húsi verslunarinnar kl. 8.30-10.15. Léttur morgunverður er í boði. Sætafjöldi er takmarkaður og því nauðsynlegt að skrá sig hér að neðan.

Netverslun í Kína

Netverslun í Kína

Sjá allar fréttir