8. júlí 2021
Markaðsspjall um innkaup SÞ á Balkanskaga
Innkaupastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNOPS) heldur kynningu fyrir Norræn fyrirtæki og býður þar sem valin fyrirtæki fá tækifæri til að kynna sínar lausnir og mynda tengsl við SÞ.

Innkaupastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNOPS) heldur kynningu fyrir Norræn fyrirtæki og býður þar sem valin fyrirtæki fá tækifæri til að kynna sínar lausnir og mynda tengsl við SÞ.
Fyrri daginn (5. október) verður almenn kynning á innkaupaþörfum Sameinuðu þjóðanna á Vestur Balkanskaga. Fulltrúar viðkomandi landa munu lýsa þeim þörfum sem þeir þurfa að uppfylla og þjónustu sem þeir leita að.
Seinni daginn (15. október) verður 5 íslenskum fyrirtækjum boðið á einkafund með innkaupastofnuninni til að kynna sig og sínar lausnir. Í þessu felast tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki til að mynda tengsl við þessa mikilvægu stofnun Sameinuðu þjóðanna.
Áhersla er lögð á sjálfbærar lausnir og græna tækni tengt innviðum í þessum löndum, hönnunarráðgjöf og byggingarvinnu. Ennfremur er þörf á lækningabúnaði og hlífðarbúnaði (PPE). Þetta er ekki tæmandi listi yfir þær þarfir sem eru til staðar í viðkomandi löndum og íslensk fyrirtæki eru hvött til að skrá sig ef þau telja sig geta boðið lausnir sem eiga erindi við SÞ.
Skráning á viðburðinn fer fram hér en endanleg ákvörðun um þátttöku verður byggð á tímaröð skráninga og því hversu viðeigandi lausnir fyrirtækjanna eru. Fyrirtæki verða ekki rukkuð um þátttökugjald nema þau verði valin til þátttöku. Þátttökugjald þeirra fyrirtækja sem verða valin til þátttöku er áætlað ISK 40.000 en gjaldið er vegna leigu á fundabúnaði Tame.

11. mars 2026
Laufey og uppbygging alþjóðlegs vörumerkis á Bandaríkjamarkaði

10. mars 2026
Ársfundur Íslandsstofu 18. mars - Alþjóðaviðskipti á óvissutímum 2.0

9. mars 2026
Viðskiptastjóri óskast á sviði orku og grænna lausna

4. mars 2026
Íslenskur fiskur í aðalhlutverkinu á virtri verðlaunahátíð í London
![Frétta mynd]()

![Sigurvegarar í flokknum Takeaway of the year taka á móti verðlaunum á Fish and Chip Awards 2025]()
4. mars 2026
Íslenskur fiskur í aðalhlutverkinu á virtri verðlaunahátíð í London