Dagsetning:
4. maí 2022
Staður:
Grand Hótel Reykjavík
Tegund:
Ráðstefna
Útflutningsgrein:
Orka og grænar lausnir
Loftslagsmót 2022
Loftslagsmót leiðir saman fyrirtæki, frumkvöðla og aðra úr atvinnulífinu á örfundum.

Taktu þátt í Loftslagsmóti þann 4. maí kl. 8.30-12.30 á Grand Hótel Reykjavík.
Loftslagsmót leiðir saman fyrirtæki, frumkvöðla og aðra úr atvinnulífinu á örfundum. Loftslagsmót er vettvangur fyrir fyrirtæki sem leitast eftir eða bjóða upp á ráðgjöf og lausnir á sviði umhverfis- og loftslagsmála. Hér er átt við hverskyns lausnir sem styðja við umhverfisvænni rekstur. Skráning fer fram hér að neðan.
Markmið viðburðarins eru að:
• Hvetja fyrirtæki til að kynna sér þær lausnir sem eru í boði.
• Bjóða fyrirtækjum upp á vettvang til að kynna sínar lausnir og þjónustu.
• Stuðla að jákvæðum aðgerðum í rekstri fyrirtækja í þágu loftslagsmála.
Allir sem skrá sig geta í framhaldinu óskað eftir örfundum með öðrum þátttakendum á Loftslagsmótinu. Sjá dagskrá hér að neðan.
DAGSKRÁ
08.30 Húsið opnar
Kaffi og léttur morgunverður09.00 Ávarp frá ráðherra umhverfis-, orku og loftslagsmála
Örerindi frá stuðnings- og styrkjaumhverfi09.30 Stefnumót hefjast
12 x 15 mínútna fundir fara fram í 3 klst12.30 Stefnumótum og dagskrá lýkur
Nánari upplýsingar veita Birta Kristín Helgadóttir hjá Grænvangi (birta@green.is) og Katrín Jónsdóttir hjá RANNÍS (katrin.jonsdottir@rannis.is).
Viðburðurinn er haldinn af Grænvangi, Rannís og EEN í samstarfi við Festu og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.