23. mars 2021

Loftslagsmót 2021

Loftslagsmót er vettvangur fyrir fyrirtæki sem leitast eftir eða bjóða upp á ráðgjöf og lausnir, á sviði umhverfis- og loftslagsmála.

Loftslagsmót 2021 verður haldið rafrænt þann 21. apríl kl. 9-12.

Loftslagsmót er vettvangur fyrir fyrirtæki sem leitast eftir eða bjóða upp á ráðgjöf og lausnir, á sviði umhverfis- og loftslagsmála. Hér er átt við hverskyns lausnir sem styðja við loftslagsvænni rekstur.

SKRÁ MIG Á LOFTSLAGSMÓT 2021

Markmið Loftslagsmóts eru að:

  • Hvetja fyrirtæki til að kynna sér þær grænu lausnir sem eru í boði.

  • Bjóða fyrirtækjum upp á vettvang til að kynna sínar lausnir og þjónustu.

  • Stuðla að jákvæðum aðgerðum í rekstri fyrirtækja í þágu loftslagsmála.

Loftlagsmótið var fyrst haldið í mars 2020 og heppnaðist einstaklega vel. Þar voru um 230 fundir haldnir með yfir 90 stofnunum og fyrirtækjum. 

„Loftslagsmál eru okkar allra og atvinnulífið leikur stórt hlutverk þegar kemur að tækniþróun, nýsköpun, hönnun og umhverfisvænum lausnum. Loftslagsmót gefur tækifæri til að tengja saman lausnir og þarfir á þessu sviði og styður við gróskumikið starf í þágu loftslagsmála. Með samvinnu náum við okkar markmiðum og ég hvet fyrirtæki og einstaklinga til að nýta tækifærið, styrkja tengslin og taka þátt í því að skapa okkur og komandi kynslóðum betri framtíð.“

- Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

Allir sem skrá sig hafa þann kost að bóka fundi með öðrum þátttakendum á Loftslagsmótinu. Loftslagsmót 2021 leiðir saman fyrirtæki, stofnanir, frumkvöðla og aðra úr atvinnulífinu á stuttum fundum til að ræða málin og kynnast loftslagsvænum lausnum við hæfi. Eins fá fyrirtæki kost á því að eiga fundi við valda aðila úr stuðningsumhverfið sem veita ráðgjöf varðandi styrkjamöguleika, nýsköpunarþróun og vaxtamöguleika á alþjóðavettvangi.  

Loftslagsmót 2021 fer fram með rafrænum hætti þann 21. apríl kl. 9-12. Nauðsynlegt er að skrá sig til að taka þátt.

SKRÁ MIG Á LOFTSLAGSMÓT 2021

Nánari upplýsingar veita Birta Kristín Helgadóttir hjá Grænvangi (birta@green.is) og Katrín Jónsdóttir hjá RANNÍS (katrin.jonsdottir@rannis.is).

Viðburðurinn er haldinn af Grænvangi, RANNÍS og EEN, í samstarfi við Festu og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið.


 

Sjá allar fréttir