24. nóvember 2020

Kynningarfundur um fjárfestingarumhverfið á Íslandi

Íslandsstofa, í samstarfi við viðskiptafulltrúa Íslands í New York, stendur fyrir kynningarfundi um fjárfestingar á Íslandi.

Íslandsstofa, í samstarfi við viðskiptafulltrúa Íslands í New York, stendur fyrir kynningarfundi um fjárfestingar á Íslandi. Markmið fundarins er að auka vitund erlendra fjárfesta og fyrirtækja um þau tækifæri sem eru í fjárfestingum á Íslandi, og kynna það viðskiptaumhverfi sem hér er.

Fundurinn fer fram á vefnum mánudaginn 30. nóvember nk. kl. 16.00-17.30 að íslenskum tíma og samanstendur af framsögum sérfræðinga frá Íslandi. Utanríkisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, opnar fundinn og svo verður farið yfir aðild Íslands að alþjóðasamningum, tækifæri til fjárfestinga í nýsköpunarfyrirtækjum og í Kauphöll, viðskiptaumhverfi, fjármálageirann hér á landi og loks hvernig er að búa og starfa á Íslandi. Eliza Reid, forsetafrú, lokar fundinum.

Viðburðurinn er öllum opinn.

Hér má horfa á streymi frá fundinum

Athugið að það þarf að smella á "refresh" á síðunni þegar kynningin er hafin.


Sjá allar fréttir