Dagsetning:

10. september 2023

Starf greinanda hjá Íslandsstofu

Umsóknarfrestur er til 10. september

Ljósmynd

Íslandsstofa leitar að öflugum sérfræðingi með brennandi áhuga á hagtölum og útflutningi, árangursmælikvörðum, greiningum og miðlun tölulegra upplýsinga.

Starfið heyrir undir svið reksturs og viðskiptaþróunar hjá Íslandsstofu. Starfið felur meðal annars í sér greiningu, úrvinnslu og framsetningu tölulegra upplýsinga ásamt þróun og framsetningu árangursmælikvarða á sviðum sem tengjast starfsemi Íslandsstofu og útflutningsstefnu Íslands.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Greining, úrvinnsla og framsetning upplýsinga á sviði útflutningstölfræði, erlendra fjárfestinga, ferðaþjónustu og öðrum sviðum sem tengjast starfsemi Íslandstofu.

  • Skilgreining og framsetning árangursmælikvarða sem styðja við starfsemi Íslandsstofu og útflutningsstefnu atvinnulífs og stjórnvalda.

  • Samskipti og samvinna við hagaðila varðandi tölfræðigreiningar og framsetningu upplýsinga á sviðum sem tengjast starfsemi Íslandsstofu.

  • Umsjón með gagnabönkum sem Íslandsstofa hefur aðgang að og notkun þeirra.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Haldgóð reynsla af greiningum, vinnslu tölfræðiupplýsinga og mótun árangursmælikvarða.

  • Menntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði tölfræði, verkfræði, tölvunarfræði eða hagfræði.

  • Hæfni til að setja greiningar fram með skýrum og áhugaverðum hætti í skýrslum, á vef og í kynningum.

  • Hæfni til að koma fram og kynna niðurstöður greininga á íslensku og ensku.

  • Framúrskarandi ensku- og íslenskukunnátta skilyrði, kunnátta í norðurlandamáli er kostur.

  • Frumkvæði, metnaður, færni í að starfa í hóp og góð samskiptahæfni.

  • Brennandi áhugi á íslensku viðskiptalífi og starfssviði Íslandsstofu.

Umsóknir og nánari upplýsingar má finna á Alfreð.is

Umsóknarfrestur er til 10. september. Nánari upplýsingar veitir Brynhildur Georgsdóttir, forstöðumaður á sviði reksturs og þróunar, brynhildur@islandsstofa.is

Starf greinanda hjá Íslandsstofu

Sjá allar fréttir