9. september 2021
Grænir iðngarðar - tækifæri fyrir Ísland
Íslandsstofa, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Landsvirkjun og Norðurþing hafa undanfarna mánuði unnið að samantekt og greiningu á tækifærum sem geta falist í þróun grænna iðngarða á Íslandi. Á fundi 14. september nk. verður staða þessarar vinnu og næstu skref kynnt.

Verðmæt tækifæri eru fólgin í uppsetningu svokallaðra grænna iðngarða á Íslandi. Íslandsstofa, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Landsvirkjun og Norðurþing hafa undanfarna mánuði unnið að samantekt og greiningu á tækifærum sem geta falist í þróun grænna iðngarða á Íslandi.
Niðurstöður vinnunnar og næstu skref verða kynnt í beinni útsendingu frá Kaldalóni í Hörpu, þriðjudaginn 14. september kl. 13-14. Þar verður gerð grein fyrir því hvernig efla má atvinnulífið, auka samkeppnishæfni Íslands og treysta byggð á landsbyggðinni með uppbyggingu grænna iðngarða.
Hægt verður að horfa á kynninguna hér eða á Facebook.
DAGSKRÁ:
Grænir iðngarðar – tækifæri í samkeppni
- Karl Guðmundsson, forstöðumaður, Íslandsstofu
Gerum heiminn grænan saman – nýtum alla strauma auðlindar
- Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri, Landsvirkjun
Græn framtíð á Bakka við Húsavík
- Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri, Norðurþingi
Samantekt
- Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

23. október 2025
Ný heimasíða miðlar stöðu, sögu og árangri Íslands í jafnréttismálum

22. október 2025
Norðurljósin í forgrunni nýrrar markaðsherferðar fyrir Ísland

20. október 2025
Ísland með sterka viðveru á ITB Asia í Singapore

17. október 2025
Ísland kynnti nýsköpun í lífvísindum á Nordic Life Science Days
23. október 2025
Ný heimasíða miðlar stöðu, sögu og árangri Íslands í jafnréttismálum
22. október 2025
Norðurljósin í forgrunni nýrrar markaðsherferðar fyrir Ísland
20. október 2025
Ísland með sterka viðveru á ITB Asia í Singapore
17. október 2025
Ísland kynnti nýsköpun í lífvísindum á Nordic Life Science Days