Dagsetning:

13. mars 2024

Morgunverðarfundur: Fríverslunarsamningur við Indland

Hver eru tækifærin fyrir íslensk fyrirtæki?

Ljósmynd

Íslandsstofa vekur athygli á þessum morgunverðarfundi í boði Íslensk-indverska viðskiptaráðsins (ÍIV) og Félags atvinnurekenda 13. mars nk.

EFTA, Fríverslunarsamtök Evrópu, og Indland hafa lokið gerð fríverslunarsamnings og stefnt er að undirritun á næstu dögum. Á fundinum verður samningurinn kynntur og tækifærin sem í honum felast fyrir íslensk fyrirtæki. Fundurinn er haldinn í fundarsal Félags atvinnurekenda, Skeifunni 11 og stendur frá kl. 8.30 til 9.45. 

Bala Kamallakharan, formaður ÍIV, mun opna fundinn. B. Shyam, sendiherra Indlands, flytur ávarp. Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, og Þórður Jónsson aðalsamningamaður munu síðan kynna fríverslunarsamninginn og þau tækifæri sem í honum felast fyrir íslensk fyrirtæki og svara spurningum fundargesta.

Samningaviðræður Indlands og EFTA um fríverslunarsamning hafa staðið í 17 ár og hafa 20 lotur samningaviðræðna átt sér stað. Viðskipti EFTA-ríkjanna og Indlands námu um 5,5 milljörðum evra á síðasta ári, eða um 825 milljörðum króna. Útflutningur EFTA til Indlands nam 2,3 milljörðum evra en innflutningur frá Indlandi 3,2 milljörðum evra. Indland hefur einnig átt í fríverslunarviðræðum við m.a. Evrópusambandið, Bandaríkin, Kanada og Bretland en ekki er komin niðurstaða í þær viðræður.

Morgunverðarfundurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir. Léttur morgunverður er í boði. Skráning á vef FA er nauðsynleg.

rich text image

Sjá allar fréttir