Dagsetning:

15. október 2023

Ferðaþjónusta til 2030 - Viltu hafa áhrif?

Nýttu tækifærið til að koma skoðun þinni á framfæri

Ljósmynd

Haustið 2022 hófst vinna við uppfærslu á stefnuramma ferðaþjónustunnar til 2030 sem lauk í byrjun árs 2023. Framtíðarsýn íslenskrar ferðaþjónustu er að vera leiðandi í sjálfbærri þróun á grunni efnahags-, umhverfis- og samfélagslegs jafnvægis.

Í þessu felst að ferðaþjónustan sé arðsöm og samkeppnishæf í sátt við land og þjóð, að ferðaþjónustan stuðli að bættum lífskjörum og hagsæld á Íslandi og að ferðaþjónustan sé þekkt fyrir sjálfbæra þróun, gæði og einstaka upplifun. Í uppfærðum stefnuramma ferðaþjónustunnar til 2030 eru 12 áherslur sem deilast á lykilstoðirnar fjórar; efnahag, samfélag, umhverfi og gesti.

Tillögur að aðgerðaáætlun
Aðgerðaáætlun mun fylgja eftir þeirri framtíðarsýn, markmiðum og áherslum sem koma fram í ferðaþjónustustefnunni og sjö starfshópar vinna nú tillögur að aðgerðum. Sett hefur verið upp  ný upplýsingasíða á vef menningar- og viðskiptaráðuneytis þar sem hægt er að kynna sér starf hópanna. Undir hverjum hópi má finna lista yfir þá sem sitja í hópunum, tímaáætlun og helstu verkefni.

Hóparnir vilja gjarnan fá ábendingar, hugmyndir og tillögur sem tengjast vinnunni.  Hér gefst því kjörið tækifæri til að koma skoðun sinni á framfæri og hafa áhrif á vinnu við ferðamálastefnu til 2030. Smelltu á þann starfshóp hér að neðan sem þú vilt koma erindi til.

Hópar:

Hóparir skila drögum að aðgerðum fyrir 15. október 2023. Þær tillögur fara í opið samráð í samráðsgátt stjórnvalda. Þá er fyrirhugað að halda opna umræðu- og kynningarfundir um vinnuna í öllum landshlutum í október og nóvember.

Ferðaþjónusta til 2030 - Viltu hafa áhrif?

Sjá allar fréttir