Dagsetning:

5. nóvember 2024

Ferðasýningin World Travel Market í London

Fulltrúar Íslandsstofu og Markaðsstofa landshlutanna á WTM í London ásamt Elizu Reid forsetafrú

Fulltrúar Íslandsstofu og Markaðsstofa landshlutanna á WTM í London 2023, ásamt Elizu Reid forsetafrú

Íslandsstofa tekur þátt í ferðasýningunni World Travel Market (WTM) í London dagana 5.- 7. nóvember 2024. Sýningin er haldin árlega og er ein stærsta sýning fagaðila (B2B) í ferðaþjónustu. Á WTM London býðst fyrirtækjum í ferðaþjónustu gott tækifæri til að kynna sig og koma á viðskiptasamböndum.

Árið 2023 tóku yfir 4.500 kaupendur þátt í sýningunni og voru yfir 29.000 fundir skráðir. Sýningin fer fram í ExCel sýningarhöllinni í London. Íslandsstofa skipuleggur þátttöku á þjóðarbás og sýnir undir merkjum Visit Iceland.

Nánari upplýsingar veitir Hrafnhildur Þórisdóttir, hrafnhildur@islandsstofa.is.

Ferðasýningin WTM 2024

Sjá allar fréttir