6. september 2021

Ferðasýningin TTG Rimini á Ítalíu

Íslandsstofa tekur þátt í ferðasýningunni TTG í Rimini, Ítalíu dagana 13.- 15. október.

Íslandsstofa tekur þátt í ferðasýningunni TTG í Rimini, Ítalíu dagana 13.- 15. október 2021. Sýningin er haldin árlega og er stærsta sýningin fyrir fagaðila (B2B) í ferðaþjónustu á Ítalíumarkaði. Á TTG býðst fyrirtækjum í ferðaþjónustu gott tækifæri til að kynna sig og koma á viðskiptasamböndum.  

Íslandsstofa skipuleggur þátttöku á sameiginlegu norrænu sýningarsvæði og sýnir þar undir merkjum Visit Iceland. 

Nánari upplýsingar veitir Karen Möller Sívertsen, karen@islandsstofa.is


Sjá allar fréttir