Dagsetning:

7. mars 2023

Ferðasýningin ITB Berlin 2023

Ein stærsta ferðasýning í heimi

Ljósmynd

Eliza Reid með sendiherrahjónunum í Berlín á ITB árið 2019 þar sem 29 íslensk fyrirtæki tóku þátt

Ísland tekur þátt í ferðasýningunni ITB Berlín í Þýskalandi, 7.-9. mars 2023.

Sýningin er ein sú stærsta sinnar tegundar í heiminum. Hún var síðast haldin með hefðbundnu sniði árið 2019 en þá sóttu hana 180 þúsund gestir, þar af 120 þúsund fagaðilar. Metþátttaka var einnig þetta ár frá Íslandi og tóku 29 fyrirtæki í ferðaþjónustu þátt í sýningunni. Fyrirkomulagi sýningarinnar hefur verið breytt og er hún nú einungis ætluð fagfólki (B2B) en ekki opin fyrir almenning helgina eftir fagdagana.

Á ITB býðst fyrirtækjum í ferðaþjónustu gott tækifæri til að kynna sig og koma á viðskipta­samböndum. Ísland verður eins og síðustu ár með aðstöðu á sameiginlegu sýningarsvæði Norðurlandanna. Pláss á sýningarbásnum er takmarkað og eru áhugasamir því hvattir til að skrá sig hið fyrsta.

Verð og skráning:

Verð fyrir þátttöku er frá 350.000 kr. til 1.300.000 kr. á fyrirtæki. Nánari upplýsingar um verðflokkana er að finna á skráningareyðublaðinu. Athugið að ferðakostnaður er ekki innifalinn en öll verð eru hámarksverð.

Nánari upplýsingar veitir Oddný Arnarsdóttir, oddny@islandsstofa.is.

Ferðasýningin ITB Berlin 2023 - áhugakönnun

Sjá allar fréttir