10. september 2021
Fagstjóri útflutningsþjónustu óskast
Íslandsstofa leitar að kraftmiklum einstaklingi í nýtt starf fagstjóra útflutningsþjónustu.

Íslandsstofa leitar að kraftmiklum einstaklingi í nýtt starf fagstjóra útflutningsþjónustu. Starfið felst í að þróa og skipuleggja þjónustuþætti Íslandsstofu við íslensk fyrirtæki í útflutningi í samræmi við útflutningsstefnu Íslands.
Við leitum að skapandi og drífandi starfsmanni sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni á alþjóðlegum vettvangi. Mikilvægt er að hafa reynslu af alþjóðlegri markaðssetningu.
Fagstjóri útflutningsþjónustu vinnur þvert á atvinnugreinar og allar áherslur Útflutnings- og fjárfestingasviðs og heyrir undir forstöðumann sviðsins. Fagstjóri ber ábyrgð á þjónustuleiðum fyrir fyrirtæki og þróar þjónustuframboðið í samstarfi við svið Viðskiptaþróunar.
Umsóknarfrestur er til 20. september. Nánari upplýsingar og umsóknir má finna á vef Alfreð.is

24. september 2026
Íslensk fjártækni í forgrunni á Nordic Fintech Week í Kaupmannahöfn

22. september 2026
Elín Sigurveig Sigurðardóttir nýr fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu

22. september 2026
Styrkja tengsl á Þýskalandsmarkaði

22. september 2026
Fullur salur í Hofi: Norðurland býr sig undir breska vetrargesti
![Íslenski básinn á Nordic Fintech Week í Kaupmannahöfn]()
24. september 2026
Íslensk fjártækni í forgrunni á Nordic Fintech Week í Kaupmannahöfn
![Frétta mynd]()
22. september 2026
Elín Sigurveig Sigurðardóttir nýr fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu
![Þátttakendur frá Íslandi á vinnustofu í Frankfurt 2026]()
22. september 2026
Styrkja tengsl á Þýskalandsmarkaði
![Þátttakendur á vinnustofu um Bretland sem haldin var á Akureyri í september 2026]()
22. september 2026
Fullur salur í Hofi: Norðurland býr sig undir breska vetrargesti