Dagsetning:

7. júní 2023

Alþjóðabankinn og uppbygging í Úkraínu

Vinnustofa á vefnum fyrir atvinnulífið

Ljósmynd

Alþjóðabankinn í samstarfi við efnahagsráðuneyti Úkraínu, þ.e. deild opinberra innkaupa og samkeppnismála, standa fyrir hálfs-dags vinnustofu (e. Business Outreach Workshop) yfir vefinn miðvikudaginn 7. júní nk. á milli kl. 7:00 og kl. 10:30 að íslenskum tíma.

Markmiðið með vinnustofunni er gera atvinnulífinu kleift að búa sig undir að taka virkan þátt enduruppbyggingu í Úkraínu þegar fram líða stundir. Ljóst er að mikillar enduruppbyggingar samfélags og innviða í landinu mun verða þörf þegar stríðinu þar lýkur. Samkvæmt nýlegu mati Alþjóðabankans nemur kostnaður við fyrrnefnda þætti nú þegar um 411 milljörðum dala - þegar rétt ríflega ár er liðið frá innrás Rússlands (sjá frétt). Sem dæmi hefur Ísland þegar skuldbundið sig til að leggja um 500 milljónir í sjóðinn URTF í gegnum Alþjóðabankann – en sá sjóður styður við enduruppbyggingu innviða, meðal annars í orkumálum og heilbrigðiskerfi Úkraínu.

Skráning og nánari upplýsingar á vef Heimstorgsins

Alþjóðabankinn og uppbygging í Úkraínu

Sjá allar fréttir