Efnahagur | Orka og grænar lausnir

Útflutningsverðmæti grænnar þjónustu aukist um 3,5% á ári

Markmið 2030

44

Staða 2023

40 ma.kr. 

Staða 2018

29 ma.kr. 

Heimsmarkmið SÞ
Lýsing

Græn þjónusta styður við loftslagslausnir og umhverfisvæna orkuframleiðslu. Hér undir falla tekjur vegna þjónustu við gagnaver, kolefnisvinnslu og ráðgjafar við umhverfisvæna orkuframleiðslu. Græn þjónusta stuðlar að minni losun á heimsvísu. Gagnaver á Íslandi nýta græna orku og kalt loftslag, kolefnisvinnslan er einstök nýjung gegn loftslagsvanda og orkuþekking stuðlar að umhverfisvænum umbótum víða um heim.

Eining

Útflutningsverðmæti í milljörðum ISK

Uppruni gagna

Hagstofan, þjónustuflokkarnir „önnur tölvuþjónusta“ (gagnaverin), eyðing spilliefna og afmengun (kolefnisvinnsla) og þekking (verkfræðiþjónusta).

Forsendur

Hér hafa allar tölur verið færðar yfir á raunvirði með verðvísitölu sem byggir á verðlagi og gengi evrusvæðisins og Bandaríkjanna. Miðað er við verðlag ársins 2024.

Útflutningsverðmæti grænnar þjónustu (ma.kr.)