Gróska, Vatnsmýri 1
511 4000
104 Reykjavík
info@islandsstofa.is
Markaðsverkefni í ferðaþjónustu
Saman í sókn
Saman í sókn
Ísland – saman í sókn er markaðsverkefni fyrir íslenska ferðaþjónustu. Stofnað var til verkefnisins árið 2020 og var hluti af efnahagsaðgerðum stjórnvalda vegna COVID-19. Verkefnið hefur nú verið framlengt út árið 2022.
1160
Umfjallanir á árinu 2021
83M
Áhorf á kynningarmyndbönd
18
Alþjóðleg verðlaun

Styrkjum ímynd Íslands og áhuga á landi og þjóð
Ríkissjóður veitti verkefninu 1.500 m.kr. í samræmi við fjáraukalög fyrir árið 2020 sem heimila gerð samnings við Íslandsstofu um samræmt kynningar- og markaðsstarf erlendis á árunum 2020–2021 til að bregðast við neikvæðum áhrifum heimsfaraldurs á íslenska ferðaþjónustu. Verkefnið er starfrækt á völdum erlendum mörkuðum.
Samningur um framhald verkefnisins var undirritaður í febrúar 2022 út árið með 550 milljón króna viðbótar framlagi.

Markmið og tilgangur
Markmið verkefnisins er að auka eftirspurn eftir íslenskri ferðaþjónustu, styrkja ímynd Íslands sem áfangastaðar og viðhalda samkeppnisstöðu íslenskrar ferðaþjónustu og annarra útflutningsgreina.
Verkefnið er unnið í samræmi við framtíðarsýn og leiðarljós íslenskrar ferðaþjónustu til 2030 sem ber yfirskriftina „Leiðandi í sjálfbærri þróun“ og langtímastefnu stjórnvalda og atvinnulífs fyrir íslenskan útflutning.
Verkefnið á að styrkja ímynd og auka eftirspurn í því skyni að auðvelda fyrirtækjum að auka sölu. Íslandsstofa mun vinna markaðsáætlun og greiningar í breiðu samstarfi og halda virkri upplýsingagjöf milli hagaðila.
Stjórn verkefnisins
Yfirstjórn verkefnis er í höndum stýrihóps sem skipaður er þremur fulltrúum ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og tveimur fulltrúum Samtaka ferðaþjónustunnar. Stýrihópur verkefnis ber ábyrgð á stefnumótun og markmiðum verkefnisins og meiriháttar ákvörðunum.
Í verkefnisstjórn sitja þrír aðilar sem tilnefndir eru af ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, fimm aðilar sem tilnefndir eru af Samtökum ferðaþjónustunnar og tveir fulltrúar sveitarstjórnarstigsins, annar tilnefndur af Reykjavíkurborg og hinn af markaðsstofum landshlutanna. Formaður verkefnisstjórnar er einn af fulltrúum ráðherra.
Íslandsstofa hefur umsjón með framkvæmd markaðsverkefnisins og ber ábyrgð á að kalla saman fundi verkefnastjórnar með reglulegu millibili. Íslandsstofa mun í samráði við breiðan hóp hagsmunaaðila vinna tillögu að markaðsáætlun fyrir verkefnið og leggja fyrir verkefnisstjórn og síðan stýrihóp til samþykktar.