![Ljósmynd](https://images.prismic.io/islandsstofa/37b7652c-202b-41c7-81dd-1d13fec4ace7_Norr%C3%A6nt%20U%CC%81tbo%C3%B0s%C3%BEing%20S%C3%9E%20um%20innkaupat%C3%A6kif%C3%A6ri.avif?ixlib=gatsbyFP&auto=compress%2Cformat&fit=max&w=950&h=535)
Heimstorg
Norrænt Útboðsþing SÞ

Íslenskum fyrirtækjum gefst nú færi á að taka átt í Norrænu útboðsþingi Sameinuðu þjóðanna sem fram fer í UN City í Kaupmannahöfn dagana 14. - 15. nóvember næstkomandi.
Á viðburðinum gefst færi á að kynna sér innkaupaþarfir fjölda stofnana SÞ og viðskiptatækifæri þeim tengdum.
Um er að ræða samstarfsverkefni Íslandsstofu, sendiráðs Íslands í Kaupmannahöfn, Dansk Industry, Business Sweden, Business Finland, Innovation Norway utanríkisráðuneytis Danmerkur auk allra Norðurlandanna. Þátttökugjald 5.000 DKK á fyrirtæki - sem er niðurgreitt að hluta.
Frekari upplýsingar er að finna á vef viðburðarins. Einnig hjá Ágústi Sigurðarsyni, fagstjóra útflutningsþjónustu (agust@islandsstofa.is).