Náttúra og umhverfi | Orka og grænar lausnir
Ísland dragi úr losun á CO2 í samræmi við aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum
Viðmið 2030
2.1 milljónir tonna CO2 ígildi
Viðmið 2025
2.4 milljónir tonna CO2 ígildi
Staða 2023
2.7 milljónir tonna CO2 ígildi
Viðmiðunar gildi
Viðmiðunarárið var sett 2005: 3,2 milljónir tonna CO2 ígildi.
Heimsmarkmið SÞ
Athugasemdir
Í aðgerðaáætlun stjórnvalda er stefnt að 35% samdrætti í losun milli 2005 og 2030. Ísland setti sameiginleg markmið með Evrópusambandinu og Noregi um að draga úr losun um 55% frá 1990-2030. Losun milli áranna 2022 og 2023 lækkaði um 0,1 milljón tonn. Aukning varð í losun frá fiskiskipum, vélum og tækjum og fjarvarmaveitum. Samdráttur í losun varð hins vegar í fiskmjölverksmiðjum, landbúnaði, urðun úrgangs og F-gösum.
Eining
Árleg losun Íslands í tonnum af CO2 ígildum sem falla undir skuldbindingar Íslands skv. Parísarsamningnum (þ.e. losun án ETS sem er undir fjölþjóðlegu kerfi með sjálfstæð markmið um samdrátt).
Uppruni gagna
Aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftlagsmálum www.co2.is. Gögn eru uppfærð árlega af Umhverfisstofnun og byggt er á 2 ára gögnum (www.ust.is). Gögnin voru síðast uppfærð 2024 vegna ársins 2023. Næsta uppfærslu verður vorið 2025 vegna losunar 2024.
Árleg losun Íslands í milljón tonnum af CO2 ígildum