25. september 2023

Suðrænir kokkanemar kynna saltfiskrétti á Íslandi

Ljósmynd

Hér má sjá sigurvegara matreiðslukeppninnar CECBI ásamt kennurum sínum

Það var margt um manninn og glatt á hjalla þegar suðrænir matreiðslunemar kynntu rétti úr íslenskum saltfiski í Hótel- og matvælaskólanum í MK þann 19. september sl. Kynningin var samstarf MK og Bacalao de Islandia, kynningarverkefnis fyrir íslenskan þorsk á Spáni, Ítalíu og í Portúgal. Undanfarin ár hefur megin áherslan í verkefninu verið samstarf með matreiðsluskólum, þar sem kokkar framtíðarinnar stíga sín fyrstu skref. Hluti af því samstarfi er CECBI, matreiðslukeppni á landsvísu þar sem íslenskur saltfiskur er aðal hráefnið. Þetta er í þriðja skiptið sem keppnin fer fram og er hún búin að festa sig í sessi á meðal þarlendra kokkanema.

Í Suður Evrópu er íslenski saltfiskurinn þekktur fyrir gæði sín og er uppistaðan í fjölmörgum þjóðaruppskriftum, og jafnvel sem jólamatur á mörgum heimilum. „Það er okkur mikil ánægja að heimsækja ykkar fallega land og að kynnast uppruna fisksins, sem við þekkjum svo vel. Vonandi getum við miðlað og skilið eftir eitthvað af okkar matreiðsluhefðum í leiðinni.” sagði Francisco Orsi, einn nemanna, frá Bologna á Ítalíu.

 Auk Franciscos voru sigurvegarar þeir Gonçalo Pereira Gaspar frá Portúgal og Diego Antonio Chavero Rosa frá Spáni. Íslandsferðina hlutu þeir í sigurlaun og komu til landsins ásamt kennurum sínum. Á kynningunni endursköpuðu þeir vinningsréttina, kynntu fyrir gestum og gáfu þeim að smakka. Þar að auki reiddu nemar í Hótel- og matvælaskólanum fram sínar eigin saltfiskkræsingar. Veislustjóri var Fanney Dóra Sigurjónsdóttir matreiðslumeistari og eigandi veitingastaðanna Hnoss og Hjá Jóni.

Daginn eftir móttökuna í MK hélt hópurinn til Vestmannaeyja þar sem þau fóru m.a. í saltfiskvinnslu VSV og um borð í fiskiskip, auk þess að upplifa dýrindis fiskmeti á veitingastöðum í Eyjum. Það má því segja að þau hafi fengið að kynnast upprunanum alla leið, allt frá veiðum og vinnslu inn í eldhúsið þar sem töfrarnir fara fram.

Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá heimsókninni

Saltfiskréttur á diski
Hópurinn úr saltfiskkeppninni í Vestmannaeyjum ásamt fulltrúum frá Íslandsstofu
Hópurinn úr saltfiskkeppninni ásamt fulltrúa Íslandsstofu og saltfiskvinnslu VSV
Hópurinn úr saltfiskkeppninni ásamt fulltrúa Íslandsstofu og saltfiskvinnslu VSV um borð í fiskiskipi
Bacalao de Islandia svuntur og saltfiskur
Suðrænir kokkanemar kynna saltfiskrétti á Íslandi

Sjá allar fréttir