18. maí 2021
Sókn inn á Bandaríkjamarkað
Íslenskum fyrirtækjum í útrás á sviði stafrænna heilsulausna eða heilbrigðisstækni býðst að taka þátt í stafrænni vinnusmiðju um hraða sókn inn á Bandaríkjamarkað.

Íslenskum fyrirtækjum í útrás á sviði stafrænna heilsulausna (Digital Health Tech) eða heilbrigðistækni (MedTech) býðst að taka þátt í stafrænni vinnusmiðju um hraða sókn inn á Bandaríkjamarkað. Fimm fjárfestingarsjóðir og 80 sjúkrahús í Bandaríkjunum koma að verkefninu.
Vinnustofa 25. maí í streymi
Opin vinnustofa verður haldin 25. maí og streymt frá Bandaríkjunum. Markmið vinnustofunnar er að undirbúa sókn inn á Bandaríkjamarkað og kortleggja nauðsynlegar tengingar.
Nordic Amplify stuðlar að samstarfi norrænna fyrirtækja við bandarísk sjúkrahús og fjárfestingarsjóði
Þau fyrirtæki sem taka þátt í vinnustofunni eru gjaldgengir umsækjendur í vikulanga vinnusmiðju í lok árs 2021 og einnig í 8 vikna hraðal í byrjun ársins 2022.
Væntingar og markmið
Þátttakendur geta reiknað með gagnlegri kynningu og greiningu á tækifærum við sókn inn á bandaríska heilbrigðismarkaðinn. Þau fyrirtæki sem fara alla leið í 8 vikna hraðalinn í janúar 2022 munu þróa verkefni áfram í samstarfi við fyrirtæki á þessu sviði í Bandaríkjunum. Að verkefninu standa fimm sjúkrasamlög en innan þeirra vébanda eru 80 sjúkrahús. Þá taka einnig fimm fjárfestingarsjóðir þátt í verkefninu. Markmiðið er að koma á samstarfi norrænna fyrirtækja við bandaríska fagaðila á sviði heilbrigðismála, svo sem sjúkrahúsa, um þróun og sölu á lausnum.
Skráning og tímasetning
Vinnustofan þann 25. maí er án endurgjalds og opin öllum. SKRÁ MIG NÚNA
Skráningarfrestur er til hádegis þann 21. maí.
Að verkefninu standa Íslandsstofa og Aðalræðisskrifstofa Íslands í New York, ásamt Business Sweden, Business Finland, Innovation Centre Demark og Nordic Innovation.
Nánari upplýsingar veitir Jarþrúður Ásmundsdóttir, fagstjóri hugvits, nýsköpunar og tækni, jarthrudur@islandsstofa.is