19. september 2022

Sendinefnd til Singapore - nýsköpun, háskólar og rannsóknir

Ljósmynd

Ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, skipuleggur sendinefnd til Singapore með áherslu á sköpun starfa í þekkingarsamfélagi dagana 7.- 11. nóvember 2022, í samstarfi við Íslandsstofu.

Áherslur heimsóknarinnar eru nýsköpun, háskólar og rannsóknir, hvernig leiða megi saman þekkingu og atvinnulíf  og hvernig læra megi af stefnu stjórnvalda í Singapore á því sviði. Einnig verða tækifæri til fyrirtækjakynninga. Singapore hefur undanfarin ár staðið fremst þjóða á sviði  háskóla-, nýsköpunar- og tækniumhverfis. Stjórnvöld þar hafa í samvinnu við atvinnulífið byggt upp þekkingarsamfélag með alþjóðasamstarf að leiðarljósi. Stuðningur stjórnvalda, skýr markmið og aðgerðir hafa skilað Singapore ítrekað í efstu sætin á sviði samkeppnishæfni og lista yfir hinar svokölluðu snjallborgir heimsins.

Undirbúningur er hafinn að dagskrá, viðburðum og kynningu á vettvangi háskóla, hugvits og nýsköpunar. 

Aðilar sem hafa áhuga á að taka þátt og nota þetta tækifæri til að efla tengsl við landið eru beðin um að fylla út skráningarformið hér að neðan.

Nánari upplýsingar um ferð og tilhögun

Nánari upplýsingar veitir Árni Alvar Arason, forstöðumaður útflutnings og fjárfestinga, arni@islandsstofa.is

SKRÁNING/ FYRIRSPURN

Sendinefnd til Singapore í nóvember

Sjá allar fréttir