10. ágúst 2021
Nýr forstöðumaður viðskiptaþróunar

Brynhildur Georgsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Íslandsstofu. Brynhildur er lögfræðingur með MBA-gráðu og býr yfir víðtækri reynslu úr atvinnulífinu. Síðustu ellefu árin starfaði hún hjá Arion banka þar sem hún var meðal annars útibússtjóri í tilraunaútibúi um aukna rafræna þjónustu og forstöðumaður rekstraráhættu bankans.
Hún hefur mikla reynslu af þróun rafrænna lausna, mótun á þjónustu við viðskiptavini, innri umbótaverkefnum, markmiðasetningu og árangursmælingum. Brynhildur hóf störf hjá Íslandsstofu í lok nóvember 2020 er hún tók að sér hönnun og innleiðingu Heimstorgs Íslandsstofu sem veitir þjónustu við íslensk fyrirtæki vegna starfsemi í þróunarríkjum og víðar.
Viðskiptaþróun vinnur að þróun fjölbreyttrar þjónustu Íslandsstofu við fyrirtæki og ber ábyrgð á Útflutningsstefnu Íslands, innleiðingu hennar og mælikvörðum. Sviðið sinnir alþjóðlegum samskiptum og heldur utan um innri og ytri umbótaverkefni Íslandsstofu, meðal annars rekstrartengd mál.
Íslandsstofa er samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda og hefur það hlutverk að greiða fólki og fyrirtækjum leið á erlenda markaði og markaðssetja Ísland til að auka gjaldeyristekjur þjóðarinnar.

3. september 2026
Bláa Lónið hlaut Útflutningsverðlaunin og Alfreð Gíslason heiðraður

28. ágúst 2026
Rýnifundur ferðaþjónustunnar: 120 hagaðilar mótuðu áherslur fyrir næsta ár

28. ágúst 2026
Íslensk nýsköpun í öndvegi á TechBBQ í Kaupmannahöfn

27. ágúst 2026
Viðskiptastjóri hugvits og tækni óskast til starfa hjá Íslandsstofu
![Frétta mynd]()
3. september 2026
Bláa Lónið hlaut Útflutningsverðlaunin og Alfreð Gíslason heiðraður
![Frétta mynd]()
28. ágúst 2026
Rýnifundur ferðaþjónustunnar: 120 hagaðilar mótuðu áherslur fyrir næsta ár
![Frétta mynd]()
28. ágúst 2026
Íslensk nýsköpun í öndvegi á TechBBQ í Kaupmannahöfn
![Bygging Grósku í Vatnsmýri]()
27. ágúst 2026
Viðskiptastjóri hugvits og tækni óskast til starfa hjá Íslandsstofu