29. október 2021

Lonely Planet velur Vestfirði sem besta áfangastað í heimi 2022

Val Lonely Planet mun beina kastljósi heimsbyggðarinnar að Vestfjörðum sem getur reynst mikil lyftistöng fyrir ferðaþjónustuna á svæðinu.

Vestfirðir eru efstir á lista yfir svæði til að heimsækja árið 2022 í árlegu vali ferðabókaútgefandans Lonely Planet yfir lönd, svæði og borgir til að heimsækja á komandi ári og hlutu svokallaða Best in Travel viðurkenningu, sem birt var 28. október. Val Lonely Planet mun beina kastljósi heimsbyggðarinnar að Vestfjörðum sem getur reynst mikil lyftistöng fyrir ferðaþjónustuna á svæðinu og Ísland sem áfangastað.

Á hverju ári tilnefna ferðarithöfundar, bloggarar og starfsfólk Lonely Planet staði fyrir Best in Travel listann, sá listi fer síðan fyrir dómnefnd sem fær það hlutverk að velja 10 staði sem skara fram úr. Hver staður sem er valinn er einstakur, býr yfir ákveðnum „vá faktor“ og hefur lagt sitt af mörkum til framþróunar sjálfbærrar ferðaþjónustu.

Fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu á Vestfjörðum fæst ekki jafn glæsileg viðurkenning og Best in Travel hjá Lonely Planet er. Ég hef oft sagt að Vestfirðir eigi mikið inni þegar að kemur að ferðaþjónustu og þarna sjáum við það alveg svart á hvítu að þetta einstaka svæði sker sig úr í samkeppni við alla rómuðustu áfangastaði heimsins.“ segir Díana Jóhannsdóttir hjá Áfangastaðastofu Vestfjarða.

Ferðaþjónusta hefur átt undir högg að sækja vegna COVID-19 síðastliðin tvö ár, en sjá mátti viðsnúning í sumar þegar erlendir ferðamenn ferðuðust í auknu mæli aftur til Íslands og til Vestfjarða þegar létti á ferðatakmörkunum. Búast má við að áhuginn á Vestfjörðum verði enn meiri þegar ferðavilji tekur að glæðast á ný, enda er um að ræða sannkallaða útivistarparadís þar sem hægt er að eyða mörgum dögum í allskonar náttúrutengda afþreyingu, hvort sem það eru gönguferðir, kayak eða bátsferðir.  

Þá hefur vestfirsk ferðaþjónusta lagt mikla áherslu á sjálfbæra uppbyggingu og er t.a.m. með silfurvottun frá umhverfissamtökunum EarthCheck. 

Það er frábær viðurkenning fyrir það þróunarstarf sem hefur átt sér stað í ferðaþjónustu á Vestfjörðum að fá þessa útnefningu frá Lonely Planet. Það má líka segja að þetta komi á besta tíma, nú þegar við stöndum frammi fyrir því verkefni að vekja áhuga ferðamanna á Íslandi á ný í kjölfar Covid-19 þar sem við munum eiga í harðri samkeppni við önnur lönd. Íslandsstofa mun vinna vel að því að kynna þessa niðurstöðu í samstarfi við Áfangastaðastofu Vestfjarða“ segir Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu.


Sjá allar fréttir