3. mars 2021
Jákvæðar horfur í kortum vaxtarfyrirtækja
Niðurstöður nýrrar könnunar Íslandsstofu meðal fyrirtækja á sviði nýsköpunar, hugvits og tækni gefa ástæðu til bjartsýni.

Íslensk fyrirtæki á sviði hugvits og tækni horfa fram á vöxt næstu 12 mánuði
Niðurstöður nýrrar könnunar Íslandsstofu meðal fyrirtækja á sviði nýsköpunar, hugvits og tækni gefa ástæðu til bjartsýni. Útflutningstölur fyrir árið 2020 sýna að samsetning útflutningstekna hefur gjörbreyst. Þannig hefur vægi útflutningstekna á sviði hugvits og tækni aukist úr 7% í 15%. Þar með hefur fjórða stoð útflutnings í hagkerfinu litið dagsins ljós.
Niðurstöður könnunar þar sem 110 íslensk vaxtarfyrirtæki á sviði hugvits og tækni tóku þátt:
- Flest fyrirtækin sjá fram á vöxt næstu 12 mánuðina.
- Nær öll fyrirtækin hyggjast fjölga starfsmönnum á árinu.
- Þrátt fyrir COVID-19 þá stóðust áætlanir meiri hluta svarenda.
- Almennt hefur viðskiptavinum ekki fækkað.
- Örlítill samdráttur var á tekjum á milli áranna 2019 og 2020 en starfsmönnum fjölgaði á sama tíma um 14%.
- 67% fyrirtækjanna hafa rekstrarfé miðað við óbreyttan rekstur til næstu tólf mánaða.
- Samanlagt hyggjast fyrirtækin sækja um 24 milljarða fjárfestingu á næstu tólf mánuðum.
- Fyrirtækin fjölguðu starfsfólki um 14% á síðasta ári. Það er ljóst að sá vöxtur verður mun hraðari ef fyrirtækin ná að sækja sér fyrirhugaða vaxtarfjármögnun.
- Ef horft er fimm ár fram í tímann, þá verður fjöldi starfa á þessu sviði kominn í um 3.500 manns miðað við áframhaldandi 14% vöxt á ári.
- Ef vöxtur fyrirtækjanna verður 20% á ári verður fjöldi starfa orðinn tæplega 5.000 manns 2026. Í dag starfa um 1.570 manns hjá þeim fyrirtækjum sem tóku þátt í könnuninni.
- Helstu viðskiptavinir fyrirtækjanna eru í Bandaríkjunum, Norðurlöndunum, Þýskalandi og Frakklandi, en það eru þau markaðssvæði sem Íslandsstofa skilgreinir sem lykilmarkaði í sinni útflutningsstefnu.
- Aðeins 6% fyrirtækjanna hafa fjármagnað sig í gegnum bankakerfið.
- Vaxtarmöguleikar íslenska hagkerfisins eru miklir á þessu sviði.
Um könnunina:
Markmið var að fá yfirsýn um stöðu og horfur vaxtarfyrirtækja á krefjandi tímum. Könnunin var gerð 4.desember til 14. janúar. Haft var samband við forsvarsaðila 199 vaxtarfyrirtækja með tölvupósti og könnun svarað í gegnum vefgátt. Alls svöruðu 110 fyrirtæki könnuninni.
Vaxtarfyrirtæki eru þau fyrirtæki sem er nú þegar eru komin með viðskipti erlendis og eða komin með fjármögnun til þess að sækja á erlendan markað.
Nánari upplýsingar veitir:
Jarþrúður Ásmundsdóttir, fagstjóri hugvits, nýsköpunar og tækni hjá Íslandsstofu, jarthrudur@islandsstofa.is
Hér að neðan má sjá nokkur dæmi um svör úr könnuninni.

16. nóvember 2026
Tryggjum íslenskunni framtíð í tækni – ákall til Apple

6. nóvember 2026
Íslensk fyrirtæki sækja fram á kínverskum markaði á CIIE í Shanghai

5. nóvember 2026
Vellíðan og viðskiptatækifæri í forgrunni á WTM London

4. nóvember 2026
Íslenskur gullkarfi og fullnýting sjávarafurða til umræðu í Berlín
![Hey Siri. Skilur þú íslensku?]()
16. nóvember 2026
Tryggjum íslenskunni framtíð í tækni – ákall til Apple
![Þátttakendur frá Íslandi á CIIE 2026 í Kína]()
6. nóvember 2026
Íslensk fyrirtæki sækja fram á kínverskum markaði á CIIE í Shanghai
![Þátttakendur Íslands á WTM 2026 í London]()
5. nóvember 2026
Vellíðan og viðskiptatækifæri í forgrunni á WTM London
![Óskar Sigmundsson talar á ráðstefnunni 100% Fish í Berlín]()
4. nóvember 2026
Íslenskur gullkarfi og fullnýting sjávarafurða til umræðu í Berlín