23. maí 2023

Íslandsstofa kortleggur íslenska nýsköpunarumhverfið

Ljósmynd

Í grunninum má meðal annars sjá að heilsutækni er sem stendur það svið nýsköpunar sem hefur laðað til sín mesta fjárfestingu. Þar á eftir koma snyrtivörugeirinn og hugbúnaðartæknifyrirtæki.

Íslandsstofa hefur í samstarfi við alþjóðlega ráðgjafar- og greiningarfyrirtækið Dealroom, sett upp gagnagrunn sem kortleggur nýsköpunarumhverfið á Íslandi. Tilgangurinn er að gefa fjárfestum betri innsýn í eðli og umfang íslenskra nýsköpunar- og sprotafyrirtækja og bæta upplýsingagjöf um fyrirtæki í leit að fjárfestingu.  

Gögnin sem grunnurinn byggir á eru unnin upp úr aðgengilegum upplýsingum um fjármögnun, en einnig gögnum sem fyrirtækin gefa upp sjálf.  Í grunninum má finna 355 fjármögnuð fyrirtæki, en innan skamms verður einnig hægt að draga fram upplýsingar um ófjármögnuð fyrirtæki, en fjöldi þeirra starfar á Íslandi.  

Í grunninum er einnig hægt að sjá hvaða svið nýsköpunar hafa laðað til sín mesta fjárfestingu, en eins og er stendur heilsutækni þar fremst, en þar á eftir koma snyrtivörugeirinn og hugbúnaðartæknifyrirtæki. Þá má sjá hvernig fjármögnun fyrirtækja hefur þróast frá því 2020.  

Jarþrúður Ásmundsdóttir, fagstjóri hugvits og tækni hjá Íslandsstofu: „Það er mikill ávinningur í því fyrir íslensk fyrirtæki að fá slíkan gagnagrunn, sérstaklega í samstarfi við þekktan og traustan aðila á borð við Dealroom. Við sjáum það í rannsóknum sem Íslandsstofa framkvæmir á erlendum mörkuðum að vitund neytenda á lykilmörkuðum Íslands gagnvart ýmsum viðskiptalegum þáttum er lakari en fyrir hin Norðurlöndin til dæmis. Við þurfum að gera fólki auðveldara að nálgast upplýsingar um það framsækna viðskiptaumhverfi sem þrífst hér á Íslandi.“ 

Í nýlegri könnun sem Íslandsstofa lét framkvæma á meðal 250 sprotafyrirtækja kemur fram að þau sjá fram á mikinn vöxt á næstu árum. Nauðsynlegt verður að laða að aukið fjármagn í formi vaxtafjárfestinga til að svo megi verða. Gagnagrunnur um íslensk nýsköpunarfyrirtæki er verkfæri sem mun auðvelda það verkefni.  

Skoða gagnagrunn

Íslandsstofa kortleggur íslenska nýsköpunarumhverfið

Sjá allar fréttir