24. mars 2021

Hvatningarviðurkenningar á Nýsköpunarmóti Álklasans

Stuðningsaðilar hvatningarviðurkenninganna eru Alcoa Fjarðaál, Efla, Íslandsstofa, Landsbankinn, Mannvit, Norðurál, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Rio Tinto á Íslandi, Samál og Samtök iðnaðarins.

Á Nýsköpunarmóti Álklasans sem haldið var nýverið veitti Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hvatningarviðurkenningar til fimm nemendaverkefna.

Eftirfarandi hlutu viðurkenningar:

Aðalsteinn Bragason, Ingvar Birgir Jónsson og Sverrir Ólafsson, frá Stóriðjuskóla Ísal, fyrir verkefnið Straummælingar skauta framkvæmdar úr skautskiptitækjum.

Áslaug Guðmundsdóttir, frá Háskóla Íslands, fyrir verkefnið Straummælingar forskauta í kerskálum álvera.

Berglind Höskuldsdóttir, frá Háskólanum í Reykjavík, fyrir verkefnið Innleiðing á rauntímaefnagreiningu í kerskála álvers.

Diljá Heba Petersen, frá KTH og Háskóla Íslands, fyrir verkefnið Í átt að hringrásarhagkerfi: Meðhöndlun úrgangs í íslenskum orkufrekum iðnaði.

Sarah Elizabeth Di Bendetto, frá Háskólanum í Reykjavík, fyrir verkefnið Hermun á loftstreymi og varmaflutningi undir yfirbyggingu rafgreiningarkers fyrir álframleiðslu.

Að Nýsköpunarmóti Álklasans standa Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Samtök iðnaðarins og Samál.

Stuðningsaðilar hvatningarviðurkenninganna eru Alcoa Fjarðaál, Efla, Íslandsstofa, Landsbankinn, Mannvit, Norðurál, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Rio Tinto á Íslandi, Samál og Samtök iðnaðarins.

Mótið var sýnt í beinni útsendingu frá Háskólanum í Reykjavík á Facebook og er hægt að horfa á upptöku frá því hér. 

Sjá allar fréttir