19. apríl 2022

Glæsileg keppni kokkanema í Róm

Ljósmynd

Markaðsverkefnið Seafood from Iceland hefur undanfarin ár lagt mikla áherslu á að kynna íslenskan þorsk fyrir ungum matreiðslumönnum í Suður-Evrópu. Þann 7. apríl var haldin kokkaskólakeppni í Róm á vegum verkefnisins, þar sem sex matriðslunemenar elduðu eigin uppskriftir úr íslenskum saltfiski. Þetta er þriðja lokakeppnin á fimm mánuðum í þremur löndum, en áður voru haldnir sambærilegir viðburðir í Madrid í mars sl. og Porto í nóvember 2021.  

rich text image

Keppnin fór fram í Istituto Gioberti kokkaskólanum í Róm og einkenndi mikil fagmennska viðburðinn. Keppendurnir komu úr sex mismunandi skólum sem eru staðsettir víðsvegar um Ítalíu: Sorrento, Róm, Tórínó, Cervia, Melfi og Giulianova. Allir skólarnir fengu sendan íslenskan saltfisk og því næst var haldin undankeppni í hverjum skóla fyrir sig og þannig valinn þátttakandi fyrir lokakeppnina í Róm. 

Í dómnefndinni var valinn maður í hverju rúmi, m.a. ítalski landsliðskokkurinn Lorenzo Alessio og Toti Lange, eigandi á saltfiskveitingastaðnum Baccalaria í Napóli. Þá sátu einnig í dómnefnd þau Donatella Chiappini, ritstjóri fyrir mat og vín hjá einu mest lesna dagblaði Ítalíu, La Repubblica, og ítalski kokkurinn Rocco Paglia sigurvegari ROMA BACCALA' 2021 og eigandi veitingastaðarins MABE í Róm. 

rich text image

Diego Di Leva, frá Istituto Specialistico San Paolo kokkaskólanum í Sorrento varð hlutskarpastur í keppninni. Hann hlaut að launum Íslandsferð og mun á næstunni koma til landsins, ásamt kennara sínum, og kynnast landinu sem framleiðir þessa einstöku gæðavöru sem íslenski saltfiskurinn er.  

Sjá allar fréttir